Markaður á bókasafninu á Fiskidaginn mikla

 Bókasafnið verður opið kl. 12 - 17 á Fiskidaginn.  Við verðum með markað í Bergi þar sem við seljum gamlar afskráðar bækur og tímarit  á kr. 50 - 500. Saga Dalvíkur á kr. 1000 kr. heftið. DVD- með tónleikum Fiskidagsins 2014 á kr. 3000. o.fl. Það er ekki posi á staðnum svo við bendum fólki að verða sér úti um  reiðufé. Allur ágóði rennur til bókasafnsins sem þarf á tekjum að halda eftir að árgjöld voru lögð af.