Ljósmyndasýning í Bergi

Ljósmyndasýning í Bergi

Ljósmyndasýningin Á sjó og í landi er nú varpað á vegg í salnum í Bergi kl. 14 - 17 alla virka daga. Sýningin er síðasta verkefni hópsins sem hittist á skjalasafninu á miðvikudagsmorgnum. Vilhjálmur heitinn Björnsson sem lést í desember var einn virkasti og áhugasamasti þátttakandinn og er sýningin sem nú er í gangi góð leið til að minnast hans og hans framlags í þetta mikilvæga verkefni.