Lestur fyrir leikskólabörnin á Bókasafninu

Lestur fyrir leikskólabörnin á Bókasafninu

Helga Jóhanna Úlfarsdóttir uppeldisfræðingur kom í dag til okkar á Bókasafninu og kynnti fyrir leikskólabörnunum sögu sína um Nonna, venjulegan strák, daglegt líf hans og ævintýri.

Helga nýtir menntun sína og reynslu við skrif bókanna. Nonna sögurnar hafa notið mikilla vinsælda og kemur ein bók mánaðarlega. Fengu börnin síðan bókargjöf að lestri loknum.