Laust starf við söfn Dalvíkurbyggðar

Laust starf við söfn Dalvíkurbyggðar

Dalvíkurbyggð auglýsir lausa til umsóknar 90% stöðu við söfn Dalvíkurbyggðar.

Nú leitum við að einstakling sem hefur áhuga á því að starfa í fjölbreyttu og menningarlegu umhverfi. Um er að ræða 90% stöðu sem dreyfist að mestu á bókasafn Dalvíkurbyggðar og héraðsskjalasafn Svarfdæla auk tilfallandi verkefna í Menningarhúsinu Bergi. Vinnutíminn er frá 10.00-17.00 virka daga en að auki býðst að taka helgarvaktir á bókasafni.

Umsækjandi þarf að hafa náð 18 ára aldri og æskilegt er að hann hafi stúdentspróf eða aðra sambærilega menntun.

Hæfnikröfur

  • Rík þjónustulund og frumkvæði í starfi
  • Sveigjanleiki og vilji til að prófa nýja hluti.
  • Góð tungumálaþekking, helst í máli og riti.
  • Góð tölvukunnátta, þekking á samfélagsmiðlum og færni til að tileinka sér ný forrit.
  • Góð færni í félagslegum samskiptum og áhugi menningarmálum.
  • Reynsla af miðlun, safnastarfi og upplýsingagjöf er kostur.

Æskilegt er að umsækjendur geti hafið störf í byrjun september eða samkvæmt samkomulagi. Laun og launakjör eru í samræmi við kjarasamning Sambands íslenskra sveitafélaga og KJALAR.

Umsóknarfrestur er til 30. ágúst nk.

 

Sótt er um starfið í gegnum Íbúagátt Dalvíkurbyggðar - Mín dalvíkurbyggð (min.dalvikurbyggd.is). Ásamt umsókn þarf að fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar, rökstuðningur fyrir hæfni í starfið og stutt persónuleg kynning á umsækjanda.

Allar frekari upplýsingar veitir Björk Hólm, forstöðumaður safna og Menningarhússins Bergs í síma 460-4931 eða á netfangið bjork@dalvikurbyggd.is