Kynning á vetrarstarfi í hádegisfyrirlestri

Fimmtudaginn 17. september verður fyrsti hádegisfyrirlestur vetrarins í Bergi. Þá munu félög og stofnanir sem þess óska geta kynnt vetrarstarfið fyrir íbúum sveitarfélagsins. Hver kynning getur aðeins tekið 5 mínútur en kynningarefni fær að liggja frammi á bókasafninu næstu dagana á eftir. Þeir sem hafa áhuga á að vera með, endilega hafið samband sem fyrst við Laufeyju á bókasafninu.