Hádegisfyrirlestur 5. febrúar

Næsti hádegisfyrirlestur er í höndum Ingu Birnu Kristjánsdóttur transkonu og íbúa í Dalvíkurbyggð. Fyrirlesturinn kallar hún Kynleiðrétting - hvað, hvernig og hvers vegna?

Inga Birna segir m.a. frá kynleiðréttingu sem hún hefur farið í gegnum og svarar fyrirspurnum. Fyrirlesturinn hefst kl. 12:15.

Inga Birna hefur hugrekkið til að segja frá, þorir þú að hlusta?

Allir velkomnir.