Gluggi 15: Umhverfisvæn innpökkunarstöð

Gluggi 15: Umhverfisvæn innpökkunarstöð

Jólamenning - talið niður í jólin 

Gluggi nr. 15

Hér á bókasafninu hafa starfsmenn sett upp innpökkunarstöð sem öllum er velkomið til að nýta til að pakka inn gjöfum fyrir jólin. Við hvetjum ykkur til að huga að umhverfisvænum aðferðum við innpökkunina með því að endurnýta gömul dagblöð, fjölpóst og bækur sem gjafapappír og jólakort og skreyta með borðum, gömlum dúkum eða efni úr náttúrunni. Jafnvel leyfa börnunum að mála á gjafapappír. Hvað með gömlu kortin sem eru enn í hanskahólfinu á bílnum? Það er meira segja hægt að nýta textíl  og gamlar tuskur í verkið og gera huggulegt! Hafiði heyrt annað eins!? Hér á bókasafninu eru dagblöð og fallegir borðar sem ykkur er velkomið að nýta. Opið er á bókasafninu alla virka daga frá 10-17 og laugardaga frá 13-16.

Hægt er að finna inni á Pinterest.com fjölmargar hugmyndir um hvernig er hægt að endurnýta efni í jólapakka. Prófið að leita til dæmis eftir upcycle wrapping ideas og sjáið allar sniðugu hugmyndirnar.

Verum frumleg og leyfum hugmyndaaflinu að leika lausum hala! Umhverfisvæn um jólin!