Gamlar guðsorðabækur

Vakin er athygli á að sýning á gömlum guðsorðabókum, í eigu Héraðsskjalsafnsins, er staðsett í Bókasafninu og verður opin á opnunartíma safnsins fram í ágústlok.
Allt eru þetta bækur úr fórum fólks úr Dalvíkurbyggð eða úr kirkjum á svæðinu.
Fólk er hvatt til að koma og sjá sýnishorn af því sem varðveitt er í Héraðsskjalasafninu.
Opið er á Bókasafninu á mánudögum 14 - 17 og á fimmtudögum  14 - 19 í sumar.