Gamlar bækur

Gamlar bækur

Nú í sumar höfum við hér á bókasafninu verið að taka upp úr gömlum kössum. Upp úr þeim hafa komið margar góðar og sjaldgæfar bækur. Okkur þótti rétt að lofa fólki að skoða þessar bækur og fletta þeim, svo við höfum sett upp litla sýningu sem heitir Gamlar bækur. Vonumst við til að fólk komi og njóti þess að skoða gamla dýrgripi.