Farðu í leitir! Nýr vefur leitir.is

Opnaður hefur verið nýr leitarvefur http://leitir.is  sem leitar samtímis í Gegni sem er samskrá velflestra bókasafna í landinu, tengdu stafrænu íslensku efni ásamt erlendum áskriftum að stafrænu vísindaefni í Landsaðgangi. Katrín Jakobsdóttir ráðherra mennta- og menningamála opnaði vefinn og kynnti nafn hans á afmælisráðstefnu Landskerfis bókasafna hf. 11.11.11. Nafn vefgáttarinnar er sótt til þess viðburðar sem á sér stað á haustin í sveitum landsins er bændur halda til fjalla og smala saman búpeningi sínum. Þeir fara í leitir. Á vefnum leitir.is  fara menn einnig í leitir og smala saman upplýsingum. Það er margt sem þar kemur í leitirnar. Förum öll í leitir!

Aðgengi frá einum stað
Leitarvefurinn opnar á nýjan hátt aðgang að ómetanlegum menningarverðmætum sem fólgin eru í söfnum landsins og gera notendum kleift að afla sér margþættra upplýsinga á einum stað sér til verulegs hagræðis. Alveg er ljóst að þessi aukna leitarvirkni gagnast notendum og þá um leið þjóðinni við hvers kyns upplýsingaleit sem tengst getur skólagöngu, sérfræðivinnu, rannsóknum eða dægradvöl.
Eftirfarandi gagnasöfn eru nú aðgengileg í gegnum leitarvefinn: Bækur.is sem er stafræn endurgerð gamalla íslenskra bóka, Elib sem er áskrift bókasafns Norræna hússins að rafrænum bókum, Gegnir sem er samskrá íslenskra bókasafna, Hirsla sem geymir vísinda- og fræðigreinar starfsmanna Landspítala- háskólasjúkrahúss, Hvar.is sem er landsaðgangur að erlendum gagnasöfnum og rafrænum tímaritum, Myndavefur Ljósmyndasafns Reykjavíkur sem inniheldur fjölmörg ljósmyndasöfn í eigu safnsins, Skemman sem er safn námsritgerða og rannsóknarita háskólanna og Timarit.is sem veitir aðgang að fjölmörgum dagblöðum og tímaritum sem hafa verið gefin út á Íslandi, Grænlandi og í Færeyjum. Fleiri gagnasöfn eiga eftir að bætast við.

Umsjón vefsins
Landskerfi bókasafna hf. er hlutafélag sem ríkið á ásamt 52 sveitarfélögum og hefur það hlutverk að reka sameiginlegt bókasafnskerfi fyrir bókasöfn á vegum þessara aðila. Fyrirtækið var stofnað 14. nóvember árið 2001. Félagið rekur nú bókasafnskerfið Gegni (gegnir.is) fyrir rúmlega 300 bókasöfn og eru þar á meðal öll stærstu söfn landsins, svo sem Landsbókasafnið, háskólabókasöfnin og Borgarbókasafn Reykjavíkur. Umsjón og rekstur leitir.is er í höndum Landskerfis bókasafna hf.

Útlit vefsins leitir.is var unnið af Hrafnhildi Jónsdóttur og Tinnu Brá Baldvinsdóttur hjá Hrím Hönnunarhúsi.