Bókasafnið í Bergi

Þann 5. ágúst n.k. mun Bókasafn Dalvíkurbyggðar opna í nýju og glæsilegu húsnæði í Menningarhúsinu Bergi.
Vegna flutninganna verður safnið lokað frá og með mánudeginum 27. júlí fram að opnunardegi.
Að því tilefni viljum við hvetja fólk til að koma í safnið fyrir 27. júlí og hjálpa okkur að flytja með því að taka bækur með sér
heim og skila svo á nýjum stað eftir 5. ágúst.
Ekki verða reiknaðar vanskilasektir á útlánuð gögn fyrr en eftir 1. sept. n.k.