Bókasafnið að flytja í Berg menningarhús

Bókasafnið að flytja í Berg menningarhús

Núna standa yfir fluttingar á bókasafninu yfir í Berg menningarhús en það eru vaskir krakkar úr vinnuskólanum sem aðstoða við fluttningana. Bæði hefur safnið verið flutt eftir tengigangi milli Ráðhúss og Bergs og utandyra á milli húsanna. Húsasmiðjan og Samkaup/Úrval lánuðu innkaupakörfur til verksins og miðar því vel áfram.

Bókasafnið verður svo opnað 5. ágúst um leið og húsið sjálft opnar með opnunardagskrá.