Félag bókasafns- og upplýsingafræða - Upplýsing gengst í samvinnu við bókasöfn á landinu fyrir Bókasafnsdegi fimmtudaginn 14. apríl n.k.
Þetta er gert til að beina augum almennings að mikilvægi bókasafna.
Bókasafn Dalvíkurbyggðar mun halda upp á daginn með því m.a. að bjóða gestum að skoða safnið og geymslur þess,
taka þátt í smá getraun á safninu og velja bestu skáldsöguna eftir íslenskan höfund. Einnig verður eitthvað gott á boðstólnum til að stinga í munninn.
Vonumst til að sem flestir leggi leið sína á bókasafnið í tilefni dagsins og njóti hans.
Bergi menningarhúsi | 620 Dalvík | Sími: 460-4930
Opnunartími:
Mán. - fös. 10:00-17:00
Lau. 13:00-16:00