Bókamenntakvöldið sem var frestað

Á morgun þriðjudaginn 6. desember kl. 20, verður bókmenntakvöldið, sem fresta þurfti í síðustu viku vegna óveðurs.  Þar koma saman nokkrir aðilar og kynna nýútkomnar bækur, bæði höfundar og heimafólk.  Við hvetjum fólk til að koma inn úr frostinu og eiga notalega stund í anddyri Bergs.  Allir eru hjartanlega velkomnir.