Besta barnabókin 2006

Krakkar athugið!!!!!!!
Hægt er að taka þátt í vali á bestu barnabókinni í Bókasafninu til 31. mars.  Þar eru þátttökuseðlar og kjörkassi. Úrslitin verða tilkynnt í Borgarbókasafni, Tryggvagötu á Sumardaginn fyrsta. Í Dalvíkurbyggð verður einn heppinn þátttakandi dregin út í lokin og hreppir hann bókagjöf.
Takið þátt í að velja bestu barnabókina 2006.