,,Þetta vilja börnin sjá" Sýning frá Borgarbókasafninu

,,Þetta vilja börnin sjá

Í Bergi er nú sýningin ,,Þetta vilja börnin sjá". Það er sýning af myndskreytingum úr íslenskum barnabókum gefnum út 2015. Alls eru 46 verk sýnd ásamt bókunum sem þær birtast í. Sýningin er árlegt verkefni Borgarbókasafnsins sem lánar hana síðan til valinna bókasafna á landinu. Sýningin verður í Bergi til 29. sept.  Allir velkomnir en börn eru sérstakir heiðusgestir og fá leiðsögn um sýninguna.