Jóladagatal safnanna og Menningarhússins Bergs

Jóladagatal safnanna og Menningarhússins Bergs

Söfn Dalvíkurbyggðar og Menningarhúsið Berg kynna menningar-jóladagatal 2022. 

Allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi á söfnum Dalvíkurbyggðar eða í Menningarhúsinu . Við höfum lagt metnað í að móta fjölbreytta dagskrá fyrir alla aldurshópa sem dreifist jafnt yfir aðventuna. Það er einlæg ósk okkar að þetta jóladagatal komi til með að stytta biðina fram að jólum, í það minnsta gera hana skemmtilegri. 

Alla viðburði verður að finna á viðburðardagatali Dalvíkurbyggðar sem má skoða HÉR og eins má finna valdar uppákomur í viðburðum á facebook síðu bókasafnsins eða menningarhússins eftir því hvað við á. Þar verður hægt að nálgast allar frekari upplýsingar um viðburðina og með því að skrá sig á facebook viðburðum getur fólk fengið áminningar í símann sinn með auðveldum hætti. Við hvetjum ykkur eindregið til að fylgjast vel með - það eru enn að bætast við uppákomur og gleði. 

 

 

Talið niður í jólin með söfnunu og Bergi

1. Desember: Aðventuröltið í Dalvíkurbygð. Jólamarkaður í Bergi opið frá 19.00-22.00 og kaffihúsið verður í umsjón Sonju Kristínar Guðmundsdóttur, opið frá kl. 16.00-23.00

Byggðasafnið verður opið á aðventuröltinu frá 18.00-21.00, frítt inn – kakó, piparkökur og allt flæðandi í jólastemningu.

2. Desember: Heyrst hefur að jólaálfarnir okkar: Pétur og Pálína mæti galvösk til leiks eftir að hafa verið í fríi á Tenerife frá síðustu jólum. Allir eru velkomnir að kíkja á bókasafnið og leita af þeim.

3. Desember: Jólaball Krílakots. Foreldrafélag Krílakots heldur jólaball fyrir nemendur leikskólans.

4. Desember: Á þessum sunnudegi biðjum við fólk að fylgjast með samfélagsmiðlum bókasafnins – það gæti verið til mikils að vinna.

5. Desember: Heimskonum boðið að hittast í Bergi og taka þátt í því að skapa félagslegt rými fyrir konur alls staðar að úr heiminum. Viðburðurinn stendur frá 16.30-17.30. Nánari upplýsingar er að finna um þetta undir viðburði hjá bókasafninu sem heitir: World women/heimskonur. Allar velkomnar!

Jólaálfarnir halda áfram að hrekkja starfsfólk bókasafnsins – aftur er öllum boðið að koma og kíkja á hverju þeir hafa tekið upp á þennan daginn.

6. Desember: Umhverfisvæn innpökkunarstöð sett upp í anddyri Menningarhússins Bergs. Bókasafnið skaffar efnivið frá afskrifuðum bókum, dagblöðum og ýmsu skrauti sem fallið hefur til síðastliðið ár. Fólk er hvatt til að koma með jólagjafir og pakka þeim inn á umhverfisvænan hátt. Innpökkunarstöðin verður opin á opnunartíma hússins allan desember.

7. Desember: Umhverfisvæn jólakortastöð opnar á bókasafninu og verður opin allan fram að jólum

8. Desember: Kvöldopnun á bókasafni – opið 18.00-22.00. Jólaspil og kertaljós, jólaglögg og almenn kósýheit.

Opnun myndlistarsýningar í sýningasal Bergs: Sigrún Gyða mun setja upp sýningu í formi myndlistar og skúlptúra.

9. Desember: Hóllinn á kaffihúsinu í Bergi. Á matseðli verða m.a. jólalegir hamborgarar!
Jólaálfar halda áfram að leika á alls oddi á bókasafninu – öllum velkomin að kíkja á þá og sjá hverju þeir hafa tekið upp á í dag.

10. Desember: Húlladúllan heimsfræga kemur með húllahringjagerðasmiðju og húllaskemmtun í Menningarhúsið Berg frá 13.00-15.00. Allar frekari upplýsingar eru á facebook viðburði og viðburðardagatali Dalvíkurbyggðar. Nauðsynlegt er að skrá sig fyrirfram á www.hulladullan.is. Hver hringur kostar 2.500 krónur. Húllahringur er auðvitað tilvalin jólagjöf!

Hóllinn verður með umsjón á kaffihúsinu og margvíslegar veitingar á boðstólnum. 

11. Desember: Á þessum sunnudegi biðjum við fólk að fylgjast með samfélagsmiðlum bókasafnins – það gæti verið til mikils að vinna.

12. Desember: Hér biðjum við fólk að fylgjast aftur með á samfélagsmiðlum bókasafnins. Valið „jólabrot“ sem gæti komið á óvart.

13. Desember: Rithöfundurinn Þórarinn Eldjárn les upp úr nýútkominni bók sinni Tættir þættir kl. 17.00 á kaffihúsi Bergs. Kaffihúsið verður opið og tilvalið að gæða sér á ljúffengum kaffibolla eða mjúku rauðvínsglasi á meðan á upplestri stendur.

Horft um öxl“ Aðventan í varðveisluöskjum héraðsskjalasafnsins. Boðið verður upp á rafræna sýningu á facebook síðu Héraðsskjalasafnsins en einnig verður opið hús á safninu, í kjallara ráðhússins milli 13.00-15.00. Heitt á könnunni og allir velkomnir. Kynnum einnig nýja sýningu í sýningarskápnum fyrir framan safnið.

14. Desember: Jólaföndur á bókasafni – gestum boðið að búa til jólaskraut til að hengja á jólatré Menningarhússins. Tækifæri til að senda kærleikskveðjur út í kosmósið og innpakka því í fallegt jólaskraut.

Íbúar Dalvíkurbyggðar fá að njóta góðverka nemenda Dalvíkurskóla í tilefni að árlegum Góðverkadegi Dalvíkurskóla. Milli 10.30-11.30 munu nemendur Dalvíkurskóla gefa kakó og piparkökur auk þess sem 1. og 2. Bekkur mun syngja nokkur vel valin lög fyrir gesti. Hvetjum alla til að mæta og umlykja sig kærleika og gæsku.

15. Desember: (Ljótu)Jólapeysu smiðja á bókasafninu frá 14.00-17.00 . Þið komið með ykkar eigin peysu en allur efniviður til að skreyta peysurnar verður á staðnum. Gestir eru einnig hvattir til að grípa með sér það sem þeir telja að geti nýst vel í föndrið.

Verið með og umbreytið peysum sem þið eruð hætt að nota í hreint einstakar jólapeysur.

Pöbb kviss í Bergi með fjölbreyttum spurningum sem henta öllum – enginn getur allt, en allir geta eitthvað. Kvissið hefst kl. 20.00 og barinn verður að sjálfsögðu opinn.

16. Desember: Skreytum saman piparkökur! Söfnin og Berg verða með glassúr í nokkrum litum og annan nauðsynlegan efnivið sem hægt er að nýta til piparkökuskreytinga. Fólk er hvatt til að taka með sér piparkökuhús ef það vill sýna meiri metnað en annars verður hægt að kaupa litla poka með 10 stk. af litlum piparkökum til að skreyta ef það kemur ekki með sínar eigin. Stundin verður opin frá 14.00-16.00.

17. Desember: Heyrst hefur að óvæntir gestir heimsæki bókasafnið og segi nokkrar skemmtilegar jólasögur. Börnum er jafnframt boðið að taka bangsana sína með sér sem býðst síðan að gista á bókasafninu þangað til á mánudag. Bangsagistipartý síðasta árs lukkaðist vel og ætla má að böngsunum sé strax farið að hlakka til að fá nýtt gistipartý.

18. Desember: Stjarnanna fjöld - Jólatónleikar Kristjönu Arngrímsdóttur og Eyþór Ingi Jónsson flytja þekktar jólaperlur við kertaljós - Tómleikarnir byrja 20:30 og kostar miðinn 3000 kr. Miðasala hefst 1. desember í Bergi en einnig er hægt að panta miða á berg@dalvikurbyggd.is

19. Desember: Hvernig var jólum fyrri tíma háttað – við skyggnumst inn í fortíðina og skoðum jólin í gegnum efnismenningu Byggðasafnsins á Hvoli. Fylgist með á samfélagsmiðlum Byggðasafnsins.

20. Desember: Jólaálfar lifa sínu besta lífi á bókasafninu og halda áfram að gera prakkarastrik. Allir velkomnir að koma og leita.

21. Desember: Náttfata bíó með jóla ívafi kl. 11.00– börn hvött til að koma með nesti, teppi og púða. Verðum með dýnur á staðnum og sköpum saman huggulega samverustund. Jólamyndin sem verður sýnd verður tilkynnt síðar. Frítt inn en foreldrar beðnir um að virða það að starfsfólk bókasafns og Menningarhúss getur ekki tekið ábyrgð á öllum börnum sem mæta. Börn sem þurfa á því að halda verða að vera í fylgd með ábyrgðamanni.

Boðið verður upp á jólaperl á bókasafninu að bíóinu loknu.

22. Desember: Krakkakviss á kaffihúsinu milli 13-15. Allt að 4 saman í liði, blandað erfiðleikastig. Hægt verður að jólaperla fyrir og eftir kviss.

23. Desember: Hátíðarró, gleði og almenn jólastemming á bókasafninu og menningarhúsinu. Starfsmenn mæta í sínu fínasta pússi og gestum boðið upp á kaffi og kakó eftir hádegið.

24. Desemember: Aðfangadagur - Lokað á safni og Menningarhúsinu Bergi.

Starfsmenn safna og Menningarhússins Bergs óska íbúum Dalvíkurbyggðar gleðilegra jóla og þökkum fyrir frábæra og viðburðarríka aðventu!

 

Opnunartímar Bókasafnins um jólin: 

 

Countdown to Christmas with the museums and Berg culture house!

  1. Advent saunter or in other words cosy stroll in Dalvíkurbyggð. Christmas market in Berg 19.00-22.00 and café Berg open between 16.00-22.00.

Byggðasafnið Hvoll with open house between 18.00-21.00 – cocoa, ginger bread and cosy!

  1. Our local Library Christmas elves are back - Pétur & Pálína will finally come back after having been exploring the mountains of Tenerife since last Christmas. Everybody is welcome to help us search for them in a local library.
  2. Kindergarten Krílakot celebrates Christmas in Berg between 10am - 12.30 - closed event.
  3. Check out our social media ‘Bókasafn Dalvíkurbyggðar’, such as facebook and instagram. There could be a possibility to win.
  4. ‘World women’ meet in Berg between 16.30-17.30. Event for women of all walks of life, regardless of the mother language each of us speak. Safe space to share stories and ideas. More info on the facebook page: World women/heimskonur.
    All women welcome - you can bring your kids in case you don´t have a safe space for them during the event time.

Christmas elves continue to tease and surprise library staff – everybody is welcome to come and see what pranks these two have done to surprise us all.

  1. Christmas gifts packaging for free and sustainably. Wrapping station at the entry of BERG available during opening hours. Come and help make this Christmas more environmentally friendly and with respect to nature.
  2. Christmas cards with respect to nature - check out our sustainable Christmas cards station that will be open until December 24th.
  3. Evening opening at the library – 18.00-22.00. Christmas games, candle lights and cosy Christmas atmosphere - make sure to be there.

Exhibition opening in Berg: Sigrún Gyða is showing her art pieces in the form of paintings and sculptures.

  1. Thai street food on offer in Berg. Special offer - Christmas hamburgers on the menu.

Christmas elves don´t want to give us a break and continue with their pranks.

  1. Famous Circus Artist so called ‘Húlladúllan’ offers a workshop for kids and adults to create a ‘hulla hoop ring’. Between 13.00-15.00 in BERG. You will find all the details on our facebook page: Bókasafn Dalvíkurbyggðar. The cost for the ring base is 2.500 krónur and it is important to sign up for the event at: www.hulladullan.is.

Thai Street food Hóllinn with a great menu in Café BERG.

  1. Check out our social media ‘Bókasafn Dalvíkurbyggðar’, such as facebook and instagram. There could be a possibility to win.
  2. Check out our social media ‘Bókasafn Dalvíkurbyggðar’, such as facebook and instagram. Christmas and traditions is the topic of the day.
  3. Þórarinn Eldjárn reads from his latest book ´Tættir þættir’ at 17.00 at café BERG. Great opportunity to enjoy coffee or a ða sér á kaffibolla eða rauðvínsglasi á meðan á upplestri stendur.

Reminisce about the past - Online exhibition about advent, as it is archived in our local archive. Check out the facebook page of our local archive ‘Héraðskjala safn Svarfdæla’
Open house between 13.00-15.00 at the local archive with coffee and exhibition on offer - archive is located in the cellar of the library.

Guests can enjoy good deeds of the students of Dalvík school on the occasion of yearly day of Charity at school. Between 10.30-11.30 would students offer cocoa and gingerbread. Students of the first and second class would sing Christmas songs for all the guests.

Christmas arts and crafts at the library – guests can create their own Christmas decorations.

  1. (Ugly) Christmas jumpers workshop at the library between 14.00-17.00. You come with some jumper / sweater and we provide creative resources to decorate your sweaters. Guests are encouraged to bring old bits and pieces they feel they could use for their creations!

Pub quiz in BERG with diverse questions for everyone - no one knows it all, but each of us know something. We start at 20.00 in BERG, the bar is of course open.

  1. Let's decorate gingerbread together! Between 14.00 - 16.00 at the library. Icing and frosting for decorations available in various colours. You can come with your own gingerbread/gingerbread house or buy 10 gingerbread pieces for 500 isk.
  2. Surprise guests visit our library and share their Christmas stories. Today is the day for teddy bears overnight weekend party. Teddy bears of our kids are welcome to stay overnight until Monday. Last year, our teddy bear overnight party was a big success amongst kids and teddy bears themselves, and we cannot do otherwise, but try it this year again.
  3. Christmas Concert. Kristjana Arngrímsdóttir and Eyþór Ingi Jónsson sing popular ‘Christmas song pearls’. The concert starts at 20:30 and the ticket costs 3000 kr. You can buy the tickets as of December 1st in BERG and you can also reserve the tickets by sending an email to berg@dalvikurbyggd.is
  4. What was Christmas like in the old days? We´ll explore it together with a local museum Hvoll. Check out our facebook page of the museum ‘Byggðasafnið Hvoll’ for details.
  5. Christmas elves keep on enjoying their life at our library and they keep on teasing us all. Everybody is welcome to search for them.
  6. Cosy time together. Movie night with a Christmas twist – matraces available and we ask the kids and parents to come with blankets and cushions, as well as something to nibble on, if you please. Christmas theme beedz on offer after the movie.

We ask parents to respect the fact that library staff cannot be responsible for all the kids that join. We kindly ask parents to ensure an accompanying person for children who need it.

  1. Kids quiz at the café between 13.00 - 15.00. Up to 4 in one competing team. Diverse level of difficulty. Christmas theme beedz on offer before and after the quiz.
  2. Do you need a break from Christmas stress? Come to BERG and library and breathe in relaxing Christmas atmosphere. Staff wearing their best clothes and coffee and cocoa on offer after lunch.
  3. Christmas Eve. Staff of BERG, museum, archive and library wish the locals Merry and relaxing Christmas. We are grateful for our advent time together.

All events are to be found on the event calendar on the webpage of Dalvíkurbyggð (dalvikurbyggd.is) and on the Facebook page of the library ‘Bókasafn Dalvíkurbyggð’. It is possible to find more detailed info about each event. Once you subscribe to an event on facebook, you will be able to get notifications. This might help you keep the track of each event, not to miss on those that you really want to be a part of.