Sumarstarf á söfnum Dalvíkurbyggðar

Sumarstarf á söfnum Dalvíkurbyggðar

Söfn Dalvíkurbyggðar og Upplýsingamiðstöð fyrir ferðamenn óskar eftir starfsfólki.

Við leitum nú að einstaklingum sem hafa áhuga á því að starfa í fjölbreyttu og menningarlegu umhverfi í sumar. Um er ræða 40% starfshlutfall og/eða önnur hvor helgi. Starfsstöðvar eru Bókasafn Dalvíkurbyggðar, Byggðasafnið Hvoll og Upplýsingamiðstöð fyrir ferðamenn. Starfsmenn öðlast þannig innsýn í heim ferðaþjónustunnar og grunnþætti safnastarfs í sveitafélaginu.

Vakin er athygli á því að hægt er að sækja aðeins um aðra hvora helgi ef 40% stöðuhlutfall hentar ekki. 

 

Helstu verkefni eru:

  • Móttaka viðskiptavina á bókasafni, ýmis dagleg verkefni og almenn upplýsingagjöf til almennings.
  • Móttaka gesta á byggðasafnið, ýmis dagleg verkefni, skráning á safnkosti og leiðsögn um sýningu.
  • Upplýsingagjöf til ferðamanna um afþreyingu, þjónustu og gönguleiðir í sveitafélaginu.
  • Þátttaka, utanumhald og skipulagning ýmissa viðburða á vegum safnanna.

 

Hæfniskröfur

  • Góð tungumálaþekking í máli og riti. Sérstaklega er horft til ensku og íslensku, norðurlandamál er kostur.
  • Góð tölvukunnátta, þekking á samfélagsmiðlum og færni til að tileinka sér ný forrit.
  • Rík þjónustulund og frumkvæði í starfi.
  • Sveigjanleiki og vilji til að prófa nýja hluti.
  • Geta unnið 1-2 helgar í mánuði. .
  • Umsækjendur þurfa að hafa náð 18 ára aldri.
  • Stúdentspróf eða önnur sambærileg menntun er kostur.
  • Reynsla af safnastarfi og upplýsingagjöf er kostur.

Ofangreindar hæfniskröfur eru ekki í áhersluröð. Auk þeirra hæfniskrafna sem tilgreindar eru er leitað að lausnamiðuðum og metnaðarfullum einstaklingum.

Æskilegt er að umsækjendur geti hafið störf í lok maí og geti unnið fram til ágústloka.

Umsækjendur eru vinsamlegast beðnir um að sækja um í gegnum Íbúagátt og velja þar: "Atvinnuumsókn safna". Ásamt umsókn þarf að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar, rökstuðningur fyrir hæfni í starfið og stutt persónuleg kynning á umsækjanda.

Laun og launakjör eru samkvæmt kjarasamning Samband íslenskra sveitafélaga og KJALAR.

Umsóknarfrestur er til mánudagsins 22. maí

Allar frekari upplýsingar veitir Björk Hólm, forstöðumaður safna í síma 460-4931 eða á netfangið: bjork@dalvikurbyggd.is

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.