Hugleiðsluhádegi á morgun!

Allir geta lært að tileinka sér hugleiðslu, hvar og hvenær sem er.
Allir geta lært að tileinka sér hugleiðslu, hvar og hvenær sem er.

Á morgun fer fram fyrsta hugleiðsluhádegið, vonandi af mörgum. Stundin fer fram í barnahorni bókasafnsins þar sem verða dýnur og púðar til að allir geti látið vel um sig fara. Hugleiðsluhádegi stendur yfir í ca 15 mínútur frá 12.30 - 12.45 og mun verða vikulegur viðburður alla fimmtudaga í vetur. Áður hafði verið auglýst að hugleiðsluhádegið yrði á miðvikudegi en það voru því miður hvimleið mistök og biðjumst við velvirðingar öllum þeim vandræðum sem það kann að valda. Tímasetningin er þó ekki steypt í stein og það má endilega koma með tillögur að betri tímasetningu þegar við hjálpumst að við að slípa saman þessar stundir. 

Hugleiðsluhádegið er viðburður á algjöru tilraunarstigi, eitthvað sem iðkendur munu þróa í sameiningu. Til þess að mæta þarf enga fyrirfram þekkingu eða reynslu af hugleiðslu - bara ykkur sjálf, hugsandi verur í holdi klæddum líkama. 

En af hverju að hugleiða?

Á síðustu misserum hafa sífellt fleiri nýtt sér aðferðir hugleiðslu til að öðlast hugarró og frið auk þess sem meiri áhersla hefur verið lögð á að einstaklingar leggi rækt við eigið sjálf. Í hversdagslegum athöfnum skella ótal hugsanir á einstaklinga hverja einustu mínútu. Með því að þjálfa hugann og koma skikkan á hugsanir sínar kyrrist hugurinn smám saman. Hugleiðsla er ekki flótti frá heiminum eða nærumhverfi sínu, þvert á móti er hugleiðsla ein aðferð til að takast á við daglegt líf með frið og hamingju að leiðarljósi. Sagt hefur verið að ef einstaklingur nær að hugleiða í einlægni, þó ekki sé nema í örfáar mínútur snemma dags þá gætir áhrifanna út allan daginn. 

Margir hugsa ef til vill - "æji ég hef ekki tíma núna - kannski seinna" ...osfrv. - en hugleiðsluhádegið snýst akkúrat um að búa til þennan tíma. Gefa sjálfum sér þessar mínútur. Hugleiðsluhádegið er því tilvalið fyrir alla þá sem vilja stilla sig af, gefa sér frið og ró að gjöf, hlúa að sér og þjálfa hugann. 

Allir velkomnir!