Gluggi 8: Jólaleikur - finnum Bangsa litla!

Gluggi 8: Jólaleikur - finnum Bangsa litla!

Jólamenning - talið niður í jólin 

Gluggi nr. 8


Bangsi litli er í felum á bókasafninu og við finnum hann ekki! Viljið þið hjálpa okkur að finna hann?

Kannski situr hann og les uppáhalds barnabækurnar sínar eða er hann að leita að uppskriftum fyrir jólamatinn? Er hann að lesa nýju bókina um Herra Hnetusmjör? Eða nýjustu spennusögurnar? Er hann týndur í ástarævintýri? Kannski er hann að leita að öðrum bangsavinum sínum sem eru líka á bókasafninu? Eða er hann skoða uppskriftir að nýjum prjónabrókum? Hvar er hann eiginlega!? 

Fundarverðlaun í boði!