Dalvíkurbyggð auglýsir eftir Forstöðumanni Safna í tímabundna afleysingu.

Dalvíkurbyggð leitar eftir eintaklingi í 100% starf forstöðumanns safna í Dalvíkurbyggð. Um er að ræða tímbundna ráðningu í allt að 11 mánuði. Viðkomandi þarf að geta hafið störf í byrjun janúar 2019.

Forstöðumaður ber ábygð á starfsemi og rekstri safna sveitarfélagsins; bókasafni, héraðsskjalasafni, byggðasafni auk upplýsingamiðstöðvar fyrir ferðamenn. Forstöðumaður vinnur innan þess ramma sem sveitastjórn samþykkir ár hvert og vinnur faglega stefnumótun fyrir starfsemi safnanna og tryggir að farið sé eftir settum lögum og reglum er gilda um viðeigandi starfsemi.

Ábyrgðar- og starfssvið

Fagleg og fjárhagsleg ábyrgð á rekstri safna.

Gerð starfs- og fjárhagsáætlana

Öflun styrkja til sérverkefna.

Stefnumótun og stjórnun starfsmannamála.

Öryggismál starfsmanna, gesta og safnkosts.

Umsjón með heimasíðum og samfélagsmiðlum safnanna.

Vera ráðgefandi um málefni þjóðminja- og skjalavörslu.

Umsjón með afhendingaskyldum aðilum og eftirlitsheimsóknum skv. lögum um opinber skjalasöfn.

Umsjón með sérverkefnum, s.s. sýningum, móttökum og tímabundnum verkefnum.

Skipulagning, skráning og safnfræðsla.

Menntunar- og hæfniskröfur

Háskólapróf sem nýtist í starfi.

Gott vald á upplýsingatækni og áhugi á að tileinka sér nýjungar á því sviði.

Þekking á vefumsjón, gagnagrunnum, skráningaforritum, myndvinnslu og fleira.

Gott vald á íslensku, ensku og einu norðurlandamáli í ræðu og riti.

Frumkvæðni, skipulagshæfileikar og sjálfstæði í vinnubrögðum.

Rík þjónustulund, færni í mannlegum samskiptum og sveigjanleiki.

Umsóknarfrestur er til og með 5. nóvember 2018

Umsóknum skal skila til sviðsstjóra fræðslu og menningarsviðs á netfangið hlynur@dalvikurbyggd.is. Umsókn um starfið þarf að fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.

Nánari upplýsingar veitir jafnframt Hlynur Sigursveinsson, sviðsstjóri fræðslu og menningarmála í síma 460-4916 eða sama netfangi og getið er að ofan.

Dalvíkurbyggð er 1900 manna sveitafélag við Eyjafjörð. Þar er blómlegt atvinnulíf, öflugt menningarlíf og aðstaða til íþróttaiðkunar framúrskarandi.

Umhverfið er sérlega fjölskylduvænt og aðstæður til útivistar með besta móti.