Bókasafn Dalvíkurbyggðar auglýsir eftir bóka- og safnverði í 50% stöðu

Bókasafn Dalvíkurbyggðar er staðsett í hinu glæsilega menningarhúsi Bergi. Héraðsskjalasafnið er sta…
Bókasafn Dalvíkurbyggðar er staðsett í hinu glæsilega menningarhúsi Bergi. Héraðsskjalasafnið er staðsett í kjallara Ráðhúss Dalvíkur.

Um er að ræða framtíðarstarf sem skiptist í 25% stöðu á Bókasafni Dalvíkurbyggðar og 25% stöðu á Héraðsskjalasafni Svarfdæla.

 

Starfssvið

  • Bókavörður er ábyrgur fyrir daglegri þjónustu bókasafnsins í samræmi við lög og reglur sem eiga við um almenningsbókasöfn.

  • Safnvörður er ábyrgur fyrir daglegri þjónustu héraðsskjalasafns í samræmi við lög og reglur sem eiga við um opinber skjalasöfn.

  • Skráning, flokkun og frágangur safnkosts á Héraðsskjalasafni Svarfdæla.

  • Móttaka, skráning og afgreiðsla á Bókasafni Dalvíkurbyggðar.

  • Upplýsingagjöf til viðskiptavina og ferðamanna í samvinnu við Upplýsingamiðstöð Dalvíkurbyggðar.

     

Hæfniskröfur

  • Stúdentspróf eða önnur sambærileg menntun.

  • Góð tungumálakunnátta og almenn tölvukunnátta.

  • Frumkvæði, gott skipulag og sjálfstæð vinnubrögð.

  • Góð þjónustulund og virðing í mannlegum samskiptum.

  • Reynsla af bóka- og safnastörfum eða öðrum sambærilegum störfum er kostur.

  • Menntun sem nýtist í starfi er kostur.

 

Umsækjendur eru vinsamlegast beðnir að senda umsókn á netfangið: bjork@dalvikurbyggd.is, merkt: „Atvinnuumsókn – bóka og safnvörður“.

Ásamt umsókn þarf að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar, rökstuðningur fyrir hæfni í starfið og persónuleg kynning á umsækjanda.

Laun og launakjör eru í samræmi við kjarasamning Sambands íslenskra sveitafélaga og KJALAR. 

 

Umsóknafrestur er til 15. Júlí

Frekari upplýsingar veitir: Björk Hólm Þorsteinsdóttir, forstöðumaður Bókasafns Dalvíkurbyggðar og Héraðsskjalasafns Svarfdæla í síma: 460-4931 eða á netfanginu: bjork@dalvikurbyggd.is

Æskilegt er að starfsmaður geti hafið störf um miðjan september.