Viltu láta ljós þitt skína á kaffihúsinu í Bergi?

Viltu láta ljós þitt skína á kaffihúsinu í Bergi?

Menningarfélagið Berg auglýsir eftir umsjónaraðila á kaffihús Bergs. Leitað er að umsjónaraðila til lengri eða skemmri tíma.

Hugmyndin að starfsemi kaffihússins er lík fyrirkomulaginu að listasalnum þar sem reglulega er breytt um listasýningar og fjölbreyttir straumar og stefnur fá að njóta sín.

Öll sala í húsinu fer í gegnum kassakerfi Menningarfélagsins og starfa umsjónaraðilar alltaf í umboði félagsins. Menningarfélagið tekur síðan 15% þóknun af seldum vörum/þjónustu og á þetta við um alla starfsemi í húsinu sem rekin er í gróðaskyni, s.s. sala á kaffihúsi/bar, tónleikar, listviðuburðir, listasýningar og annað þar sem seldur er aðgangseyrir.

Hægt er að leigja salinn eða aðstöðu til veisluhalda og gildir þá önnur gjaldskrá. Sjá nánar HÉR.

Hægt er að sækja um einn dag, helgi, viku eða lengri tíma sé þess óskað. Hugmyndin er að allir hafi jafna möguleika á að láta ljós sitt skína í Menningarhúsinu okkar. Starfandi veitingaaðilar í Dalvíkurbyggð geta einnig tekið að sér aðstöðuna og haldið stærri viðburði.

Umsóknarfrestur er til 5. september.

Umsóknir má senda á berg@dalvikurbyggd.is en einnig má hringja í síma 866-4998 fyrir frekari upplýsingar.

Athugasemdir