Tónleikar með Heima World í Bergi

Næstkomandi fimmtudagskvöld, 14.júní, heldur dúettinn Heima World tónleika á Kaffihúsinu í Bergi menningarhúsi. Heima World er "Alternative Folk Dúett" sem samanstendur af hjónunum Rúnari Sigurbjörnssyni og Elínu Ólafsdóttur.

Fyrsta breiðskífa þeirra (The Long Road Home) kom út í Kína árið 2009 en þau skötuhjú ferðuðust saman um Kína árum saman og kynntu og spiluðu tónlist sína þar. Þau hafa spilað mikið á Íslandi síðan þau komu heim meðal annars á Iceland Airwaves festivalinu einnig er nýjasta myndbandið við lag þeirra Daylight í töluverðri spilun í sjónvarpinu Þau eru núna að taka upp sína aðra breiðskífu sem kemur út á Íslandi 2012. Kraftmikil tónlist með stórt hjarta.

Tónleikarnir hefjast kl. 21:00 og miðaverð er 1.500.-

Athugasemdir