Tónleikar í Bergi á morgun kl. 20:30

Rannveig Káradóttir söngkona ásamt Birnu Hallgrímsdóttur píanóleikara halda tónleika á morgun, þriðjudaginn 19. júlí kl. 20:30 í salnum í Bergi. Hvert lag á efnisskránni er tileinkað ákveðnum hlut eða fyrirbæri sem finnst í eða tengist íslenskri náttúru. Til að auka áhrif tónlistarinnar verða flytjendur umkringdir ljósmyndum af náttúru Íslands. Samspil orða, tónlistar og mynda munu skapa andrúmsloft sem verður einstök upplifun fyrir tónleikagestinn.

Miðasala í andyri fyrir tónleika

Athugasemdir