Tónleikar færast til sunnudags 17.desember

Tónleikar færast til sunnudags 17.desember
ATH - ATH - ATH!!!
Við getum víst ekki stjórnað veðrinu en stundum væri það óskandi. Stjórnandi Kammerkórs Norðurlands hefur setið fastur í Reykjavík og allar flugsamgöngur legið niðri. Kórinn neyðist því til að fresta tónleikum sínum í Bergi til morguns, sunnudagsins 17. Desember kl. 20.00!
Við vonum heitt og innilega að þetta setji ekki allt á hliðina hjá ykkur kæru vinir og óskum þess að sjá ykkur í hlýjunni í Bergi á morgun ❤️
 

Athugasemdir