Þorpin - Bubbi leggur land undir fót

Nú í haust mun Bubbi Morthens leggja land undir fót og heimsækja landsbyggðina auk þess sem hann mun koma fram á höfuðborgarsvæðinu. Heiti tónleikaraðarinnar að þessu sinni er "Þorpin" og vísar Bubbi þar annars vegar í landsbyggðina og hins vegar í síðustu geislaplötu sem hann gaf út og ber nafnið Þorpið. Hún kom út í vor og hefur selst mjög vel. Á þeirri plötu hverfur Bubbi að hluta til aftur í ræturnar og er kassagítarinn framar en hann hefur verið lengi.

 Laugardaginn 6. október kl. 20:30 heldur Bubbi tónleika í Bergi. Miðaverð er kr. 2.500, miðasala á midi.is og við innganginn.

Athugasemdir