Sýning í mars

Í dag föstudaginn 6. mars klukkan 16:00 verður opnun á sýningu mars mánaðar. Þetta er afar áhugaverð sýning en sýnd verða grafíkverk Jóns Engilberts (1908-1972). Við opnunina mun Dótturdóttir Jóns , Gréta Engilberts segja frá afa sinum og verkum hans. Á sýningunni má auk verka hans sjá verkfæri Jóns og ferlið í vinnu hans. Á sýningunni eru verk sem Jón vann á árunum 1930-57 og verða þau til sölu. 
Á opnunardaginn og laugardaginn 7. mars verður einnig textíll unninn undir nafninu Engilberts-hönnun ehf. til sölu og sýnis í Bergi.

Athugasemdir