Svarfdælskur mars 2019

Svarfdælasaga
Föstudagur 29. mars.Nemendur í 10. bekk Dalvíkurskóla fjalla um Svarfdælasögu í Bergi frá kl. 12.30 – 13.30. Allir velkomnir!

Heimsmeistaramót í BRÚS
Föstudagskvöldið 29. mars verður heimsmeistaramótið í BRÚS háð að Rimum í Svarfaðardal. Keppnin hefst kl. 20.30 og að venju keppt um gullkambinn góða. Þátttökugjald er kr. 1000.

Málþing og söngur
Á laugardag 30. mars kl. 14.00 verður málþing og söngur í Menningarhúsinu Bergi undir yfirskriftinni:  Kórar í Dalvíkurbyggð

Fram koma Kvennakórinn Salka, Kór eldri borgara, Karlakór Dalvíkur og Kór Dalvíkurkirkju. Fjallað verður um söng og kórastarf á svæðinu, fyrr og nú, og kórarnir kynna sig í tali og tónum. Einnig syngja þeir saman.

Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir!

Svo tökum við MARSINN
Á laugardagskvöldið tökum við svo MARSINNog nú í salnum uppi í Víkurröst.
Húsið opnar kl. 21.00 og Inga Magga telur í marsinn kl. 21.30. Hljómsveit hússins leikur undir.

Gengið inn um gamla ball- innganginn. Aðgangseyrir er kr. 2500.
Nú er tækifærið fyrir þá sem hefur alltaf langað, en ekki þorað!

Aðalfundur Sögufélags Svarfdæla
Sunnudagur 31. mars kl. 13. Fundurinn er haldinn í húsnæði Héraðskjalasafnsins, í kjallara ráðhússins. Allir áhugasamir eru velkomnir!

Sjáumst á menningarhátíðinni Svarfdælskum marsi 2019

Athugasemdir