Sögustund í apríl

Að þessu sinni ber fyrsti föstudagur í apríl upp á föstudaginn langa.  Þess vegna höfum við fært sögustundina til 13. apríl.
Þá mun Þuríður Sigurðardóttir /Þura lesa úr bókum að eigin vali fyrir börn á öllum aldri.  Þetta verður síðasta sögustundin á þessum vetri.  Nú fer að koma gott veður og börnin leika sér úti.  Langi, langi bókaormurinn fær svo að vera hjá okkur í sumar, en verður sennilega tekin niður í haust, þegar sögustundir byrja aftur.  En munið  -  13. apríl kl. 16.00 - Þura les fyrir alla sem vilja hlusta. 

Athugasemdir