Sögustund á bókasafninu

Næsta stund verður föstudaginn 4. nóvember n.k. kl. 16.00. Þá mun Þorbjörg kennari lesa fyrir börnin úr bókum að eigin vali.
Bókaormurinn stækkar og stækkar. Hann lengdist mikið síðast og ætlar að liðast um bókasafnið í allan vetur. Eftir því sem fleiri börn koma verður ormurinn lengri. Hvetjum við því öll börn á aldrinum 4-7 ára til að koma á bókasafnið og hlusta.


Bókasafn Dalvíkurbyggðar

Athugasemdir