Restrasjón í Bergi sunnudaginn 25. nóvember

Restrasjón verður í Bergi sunnudaginn 25. nóvember kl. 16:00. Dansleikur í anda gömlu góðu Rekstrarsjónanna sem haldnar voru m.a. á Hótel KEA og Alþýðuhúsinu. Valinkunnir tónlistarmenn mæta, syngja og leika gömlu lögin. Guðmundur Kristjánss, Júlli Bald, Friðrik Villa, Kiddi Haukss, Villi Hagg og Ármann Einarss. Athugið að þetta er skemmtun fyrir alla, sama á hvaða aldri þeir eru. Ekkert rúllugjald, sem þýðir að það er frítt inn. Fjölmennum.

Fjáröflunarnefnd 10. bekkjar mun selja vöfflur og drykki.

Athugasemdir