Norðlenskar Konur í Tónlist,

 

Félagskonur KÍTÓN á Norðurlandi halda tónleika föstudaginn 4. mars kl. 20.00 í Menningarhúsinu Bergi, Dalvík.
Fram koma Helga Kvam, píanó, Kristjana Arngrímsdóttir, söngur, Lára Sóley Jóhannsdóttir, söngur og fiðla og
Þórhildur Örvarsdóttir, söngur.
 
Tónlistarkonurnar stóðu fyrir tónleikaröð síðastliðið haust sem hlaut frábærar viðtökur og hér kemur hópurinn saman aftur og flytur lög sem íslenskar og erlendar konur hafa samið og flutt ógleymanlega. Will you still love me, Give me one reason, Heyr mína bæn, Í rökkuró eru meðal laga sem munu hljóma.
 
Miðasala við innganginn. Miðaverð kr. 2.500.
 
 

Athugasemdir