Ljósmyndasýning Jóns Balda opnar í dag í Bergi

Í dag, föstudaginn 29.júlí,  kl. 17:00 opnar í Bergi ljósmyndasýning Jóns Balda. Undanfarin ár hefur Jón sýnt ljósmyndir sínar á Fiskidaginn mikla á Dalvík við miklar vinsældir. Í ár heldur hann ljósmyndasýningu í salnum í Bergi menningarhúsi. Á sýningunni verður hægt að sjá eitthvað af eldri ljósmyndum frá Jóni en einnig nýjar og óséðar myndir sem tengjast hafinu, bæði af fólki og skipum. Frábær ljósmyndasýning sem enginn ætti að láta framhjá sér fara.

Athugasemdir