Kristján Karl með píanótónleika í Bergi

Á morgun, föstudaginn 12. ágúst kl. 20:00 heldur Kristján Karl Bragason píanótónleika í Bergi menningarhúsi. Tónleikarnir eru hluti af tónlistarhátíðinni BERGMÁLI sem lauk í síðustu viku. Tónleikunum var frestað þá þar sem þeir voru á sama tíma og styrktartónleikar Kristjáns Guðmundssonar. 

Nú eru þeir komnir á dagskrá aftur og verða fluttir eins og áður segir föstudaginn 12. ágúst kl. 20:00.

Dagskrá tónleikanna er:

Franz Schubert Sónata D.664/op. 140
Sergei Prokofiev Sónata nr. 7
- - -
Frédéric Chopin Sónata nr. 3 í h-moll op. 58 


Flytjandi er heimamaðurinn Kristján Karl Bragason. Miðasala er við innganginn en einnig er hægt að taka frá miða á Kaffihúsinu.

Athugasemdir