Klassík í Bergi - Víkingur Heiðar spilar á laugardaginn

Klassík í Bergi - Víkingur Heiðar spilar á laugardaginn

Menningarhúsið Berg á Dalvík býður upp á metnaðarfulla tónleikaröð í vetur undir nafninu Klassík í Bergi 2011-2012. Slík tónleikaröð verður framvegis fastur liður í starfsemi Bergs.

Klassík í Bergi 2011-2012 hefst með stórtónleikum Víkings Heiðars Ólafssonar píanóleikara laugardaginn 5. nóvember næskomandi. Tónleikarnir hefjast klukkan 16:00. Á fjölbreyttir efnisskránni eru meðal annars Pathetique sónata Beetovens, verk úr smiðju Franz Liszt og útsetningar Víkings á þekktum íslenskum sönglögum. Á milli verka ræðir Víkingur við áheyrendur um tónlistina sem hann flytur. Nánari efnisskrá tónleikanna er að finna hérna. Að sama skapi eru hér upplýsingar um feril hans.

Forsala áskriftarkorta sem gilda á alla tónleikana á Klassík í Bergi 2011-2012 er á midi.is og í Bergi. Verð áskriftarkorta sem gilda á alla þrenna tónleikana er 7.500.

Forsala miða á tónleika Víkings Heiðars er í Bergi og í síma 460 4000 eða 861 4908. Miðar á einstaka tónleika kosta 3.500.

Athugið að verð fyrir börn á grunnskólaaldri er 2.000.-

Dagskrá á Klassík í Bergi 2011-2012
5. nóvember,         laugardagur kl. 16:00                 Víkingur Heiðar Ólafsson píanóleikari
21. janúar,             laugardagur kl. 16:00                 Sigrún Eðvaldsdóttir fiðluleikari og
                                                                              Anna Guðný Guðmundsdóttir píanóleikari
17. mars, laugardagur kl. 16:00                               Kristinn Sigmundsson óperusöngvari og
                                                                              Jónas Ingimundarson píanóleikari

Tónleikasalurinn í Bergi rúmar einungis 170 manns og nálægð áheyrenda við flytjendur því eitt af einkennum hans. Til að undirstrika og nýta þennan kost salarins munu flytjendur ræða við áheyrendur á milli verka og veita þeim í gegnum það samtal innsýn í tónlistina sem þeir flytja, hver með sínum persónulega hætti.

Menningarhúsið Berg á Dalvík vill með þessari tónleikaröð veita fólki tækifæri til að njóta hluta af því besta sem íslenskt tónlistarlíf hefur upp á að bjóða, við þær kjöraðstæður sem hafa skapast með tilkomu salarins í Bergi.

Athugasemdir