Klassík í Bergi

Klassík í Bergi

Laugardaginn 19. mars kl 16:00 kemur Kristján Jóhannsson stórsöngvari í Menningarhúsið Berg ásamt Jónasi Þóri undirleikara. Þessir tónleikar eru hluti af tónleikaröðinni Klassík í Bergi sem Mennningarfélagið Berg stendur fyrir ár hvert. Flutt verða íslensk, ítölsk og skandinavísk sönglög í bland við ítalskar aríur. Tónleikarnir verða kryddaðir með skemmtilegum litlum sögum og fróðleik.

Athugasemdir