Kaffihús - Rincon Canario opnar

Mánudaginn 8. apríl n.k. kl. 11:00 opnar, eftir breytingar, nýtt kaffihús hér í Bergi. Kaffihúsið heitir Kaffihús - Rincon Canario og er rekið af spænskum félögum sem meðal annars reka veitingastað í Laxdalshúsi á Akureyri.  Á boðstólnum verða meðal annarra rétta hádegissúpa og brauð, spænskir tapas réttir, kökur og kaffi. Það verður því bæði veitinga- og kaffihúsastemmning í Bergi. Í framtíðinni verður síðan hægt að kaupa spænskan varning á borð við sultur, súkkulaði og ýmislegt fleira.

Opnunartími kaffihús-Rincon Canario verður sem hér segir:
Mánudagar:       11:00-17:00
Þriðjudagar:       11:00-17:00
Miðvikudagar:   11:00-17:00
Fimmtudagar:    11:00-17:00
Föstudagar:       11:00-17:00
Laugardagar:      11:00-17:00
Sunnudagar:          Lokað

Vonumst til að íbúar Dalvíkurbyggðar og aðrir gestir taki vel á móti þessari nýju viðbót í byggðarlagið.

Athugasemdir