Jónas Sig og Ritvélar framtíðarinnar í Bergi

Jónas Sig og Ritvélar framtíðarinnar í Bergi
Jónas Sig og Ritvélar framtíðarinnar ætla endurtaka leikinn frá því í fyrrasumar og fara í útilegutúr hringinn í kringum landið, nema í þetta sinn eru það fleiri dagar og fleiri staðir. Tónleikarnir verða í Menningarhúsinu Bergi 29. júní kl. 21:00

Eftirvæntingin er mikil enda fátt skemmtilegra en að heimsækja bæi, þorp og sveitir hringinn í kringum landið, hitta frábært fólk og drekka í sig íslenska náttúru.

Síðasta sumar var fullt hús í Bergi og svakaleg stemmning svo það borgar sig að tryggja sér miða. 
Miðasala á miði.is og við innganginn
 
 
 
 

Athugasemdir