Jólakötturinn, jólatónleikar í Bergi

Jólatónleikarnir Jólakötturinn er á morgun, fimmtudaginn 13.desember. 

Stórkostleg skemmtun þar sem yfir 80 listamenn í Dalvíkurbyggð leiða saman hesta sína og flytja vel valin jólalög.

Fram koma Karlakór Dalvíkur, Kvennakórinn Salka, stúlknakór ásamt einsöngvurum og hljóðfæraleikurum.

Tvennir tónleikar í boði kl. 19:30 og 22:00. Miðaverð: fullorðnir kr. 2.500.- og börn yngri en 18 ára kr. 1.500.-.

Forsala og miðapöntun í Bergi.

Athugasemdir