Jóhannsþing í Bergi menningarhúsi

Jóhannsþing í Bergi menningarhúsi

Þann 9. febrúar n.k. kl. 13:30 mun byggðasafnið Hvoll á Dalvík standa fyrir málþingi um Jóhann K. Pétursson Svarfdæling. Þann dag hefði Jóhann orðið 100 ára og að því tilefni hefur Íris Ólöf forstöðumaður byggðasafnsins sett saman dagskrá þar sem fjallað verður um þennan óvenjulega mann frá ýmsum hliðum. 

Auk Írisar Ólafar munu fimm fyrirlesarar haldar þar erindi. Jón Hjaltason sagnfærðingur og höfundur bókarinnar Of stór fyrir Ísland og Óskar Þór Halldórsson frá Jarðbrú sem gert hefur heimildarmynd um Jóhann, fjalla um ævi hans og aðstæður.  Pálmi Óskarson læknir ræðir um ástæður fyrir líkamsvexti hans og Unnur Erla Ármannsdóttir segir frá verkefni sem hún vinnur að þessa dagana og lýtur að því að endurskapa Jóhannsstofu í þrívídd fyrir tölvuskjá.  Mun Hermína Gunnþórsdóttir svo fjalla um hvernig það er að tilheyra þessum svokölluðum ,,hinum“ í samfélagi manna en Hermína er lektor og sérfræðingur í skóla án skilgreiningar. 

Á málþinginu má hlýða á tónlistaratriði úr dagskrá byggðri á ævi Jóhanns sem Samkór Svarfdæla æfir um þessar mundir. Þá verður myndum af Jóhanni varpað upp á tjald. 

Í boði verða léttar veitingar og að lokinni dagskrá er gestum boðið að skoða Jóhannsstofu en hún er til húsa á byggðasafninu Hvoli.

Málþingið verður, eins og áður sagði, á afmælisdegi Jóhanns þann 9. febrúar kl. 13:30 í Bergi menningarhúsi.

Athugasemdir