Helgin í Bergi menningarhúsi

Það verður ýmislegt um að vera um helgina í Bergi menningarhúsi.

Á föstudagskvöldið verður hugguleg stemmning á Kaffihúsinu þar sem Soffía Húnfjörð kynnir vöru sýna og kynning verður á náttúrulega snyrtivörunum frá Helgu Bjarna. Grammafónninn verður uppivið og skapar þægilega og notalega stemmningu.

Á laugardaginn er 112 dagurinn haldinn í Bergi frá kl. 14:00-17:00. Þennan dag verður sameiginlega kynning þeirra sem sinna hjálparstörfum hér í sveitarfélaginu. Þeir sem að deginum koma eru lögreglan, heilsugæslan, slökkviliðið, Rauði krossinn, Björgunarsveitin og Slysavarnardeild kvenna.  

Athugasemdir