Helga Bryndís á Klassík í Bergi

Helga Bryndís á Klassík í Bergi

Tónleikaröðin Klassík í Bergi 2013-2014 heldur nú áfram. Laugardaginn 25. janúar kl. 16:00 kemur Helga Bryndís Magnúsdóttir píanóleikari fram á Klassík í Bergi.

Helga Bryndís leikur fjölbreytileg verk eftir frönsk tónskáld. Leikin verða verk eftir Couperin, Fauré, Chabrier, Ravel og Sónata nr. 3 í h-moll eftir Chopin.

Miðar á einstaka tónleika eru seldir við innganginn og kosta 3.500, 13-18 ára borga 1.000.- og frítt er fyrir 12 ára og yngri. Forsala miða er hafin í Bergi hjá Þulu Café-Bistro.

Athugasemdir