Handleikið - Opnun sýningar Ragnhildar Jóhanns

Handleikið - Opnun sýningar Ragnhildar Jóhanns
Laugardaginn 14. mars kl. 14-16
Listakonan verður á staðnum
 
Málverkaseríuna Handleikið má kalla klassískt kyrralíf – hefðbundið uppstillt viðfang, vandlega útfært og með djúpri virðingu fyrir hefðinni en við nánari athugun afhjúpast óvænt hreyfing inn í formfast kerfið. Mannleg snerting, þar sem hendur birtast og umbreyta hinu sígilda myndformi. Kyrralífið rofið.
 
Kyrralífsmyndir hafa í gegnum aldirnar verið táknmynd fegurðar, upphafning hversdagslegra hluta og hinnar óhagganlegu reglu listarinnar. Í verkum Ragnhildar er kyrrðin ekki algild, ekki einungis spegilmynd hinnar fullkomnu reglu, heldur vettvangur mannlegrar íhlutunar – handa, sem spretta fram úr tóminu og káfa, snerta og breyta.
 
Höndin, þessi óvænti innrásaraðili í kyrrðina, verður sögn um líf og óreiðu. Því fastar sem verk Ragnhildar halda í hina klassísku fagurfræði og hefð, því skýrari verður truflunin og myndun spennuþrunginna andstæðna – milli hinnar skipulögðu fegurðar og mannlegrar óreiðu – sem blæs lífi í atburðarás verkanna. Áhorfandinn er dreginn inn í heim þar sem snerting skapar tengingu, þar sem höndin bætir við nýrri frásögn í kyrralífsmyndina, býður okkur að taka þátt, að finna mennskuna í miðri kyrrðinni. Hún vekur okkur til umhugsunar um hvers vegna við endurtökum hið kunnuglega, hvers vegna við snertum, hvers vegna við þráum tengingu – og hvers vegna, í raun, það er aldrei óþarfi að hugsa eitthvað upp á nýtt.
 
Ragnhildur Jóhanns (f. 1977) myndlistarkona býr og starfar í Reykjavík. Hún útskrifaðist frá myndlistardeild Listaháskóla Íslands árið 2010 og hefur síðan þá tekið þátt í fjölda einka- og samsýninga, bæði á Íslandi og erlendis.
Ragnhildur vinnur með fjölbreytta miðla í listsköpun sinni, þar á meðal olíumálverk, teikningar, klippimyndir, prent og skúlptúra. Auk þess hefur hún unnið markvisst með bókverkagerð og gefið út fjölda bókverka.