Hagyrðingakvöld í Berg

Laugardaginn 14. jan. kl:20.30 verður haldið hagyrðingakvöld í Menningarhúsinu Bergi Dalvík.

Þar munu koma fram hagyrðingarnir og ör-yrkjarnir:

Davíð Haraldsson
Reynir Hjartarson
Birgir Marinósson
Sigurgeir Ólafsson
Þórólfur Jónsson

Bragvörður: Kristján Hjartarson


Einnig mun Karlakór Dalvíkur syngja nokkur lög. Stjórnandi: Guðmundur Óli Gunnarsson

Að svarfdælskum sið mun salurinn syngja kveðskapinn jafnóðum og hann verður til, með fulltingi karlakórsins við undirleik
Daníels Þorsteinssonar


Miðaverð aðeins kr. 2.000.
( ath að ekki er hægt að greiða með greiðslukortum )


Fjölmennum og eigum saman skemmtilega kvöldstund.

Karlakór Dalvíkur

Athugasemdir