Gréta ráðin framkvæmdarstjóri og Þau bæði ehf. nýjir rekstraraðilar kaffihússins

Gréta ráðin framkvæmdarstjóri og Þau bæði ehf. nýjir rekstraraðilar kaffihússins

Menningarfélagið Berg ses. hefur ráðið Grétu Arngrímsdóttur sem nýjan framkvæmdarstjóra félagsins og tók hún við af Írisi Daníelsdóttur þann 1. október sl.  Gréta er með grunnskólakennaramenntun frá Háskólanum á Akureyri og hefur starfað sem umsjónarkennari í Dalvíkurskóla frá 2006.  Gréta er gift Júlíusi Júlíussyni og eru þau búsett á Dalvík.  Gréta og Júlíus reka fyrirtækið Þau bæði ehf. og hefur Menningarfélagið einnig samið við þau um rekstur kaffihússins.  Mun nýja kaffihúsið í Bergi opna eftir miðjan október.

Stjórn Menningarfélagið Berg ses. býður Grétu og Júlíus hjartanlega velkomin.

 

 

 

 

 

 

 

Athugasemdir