Framkvæmdarstjóri og rekstur kaffihúss í Menningarhúsinu Bergi

Framkvæmdarstjóri og rekstur kaffihúss í Menningarhúsinu Bergi


 Rekstur kaffihúss í Menningarhúsinu Bergi á Dalvík

Menningarfélagið Berg ses. auglýsir eftir rekstraraðila fyrir kaffihús í Menningarhúsinu Bergi Dalvík.

Umsóknarfrestur er til og með 15. september 2013.

 
Rekstraraðili kaffihúss hefur jafnframt séð um húsvörslu í Bergi.
Auglýst er eftir rekstraraðila fyrir kaffihúsið frá og með 1. desember 2013 eða samkvæmt samkomulagi.
Menningarhúsið Berg er staðsett í hjarta Dalvíkur. Þar er kaffihús með nýgerðu eldhúsi með grunnbúnaði til veitingareksturs, bókasafn og salur til ýmissa nota. Menningarfélagið Berg ses. sér um rekstur hússins og alla almenna dagskrá. Starfsemin í húsinu hefur verið fjölbreytt frá opnun þess s.s. tónleikar, bíósýningar, fundir, ráðstefnur og sýningar af ýmsu tagi, en náin samvinna er á milli kaffihússins, bókasafnsins og framkvæmdarstjóra Bergs um dagskrá hússins.
Æskilegt er að umsókninni fylgi hugmynd um reksturinn og framtíðarsýn ásamt rekstrarlegum forsendum.
 
Framkvæmdarstjóri í Menningarhúsinu Bergi á Dalvík
Menningarfélagið Berg ses. auglýsir eftir framkvæmdarstjóra fyrir Menningarhúsið Berg á Dalvík frá 1. nóvember 2013 eða samkvæmt samkomulagi.
Um er að ræða 50% stöðu.
Umsóknarfrestur er til og með 15. september 2013.
 
Hæfniskröfur
·         Frumkvæði og þörf fyrir að ná árangri.
·         Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
·         Háskólamenntun sem nýtist í starfi æskileg.
·         Reynsla eða haldgóð þekking á rekstri.
·         Lipurð í mannlegum samskiptum.
Ábyrgðarsvið
·         Ábyrgð á rekstri og starfsemi menningarhússins.
·         Ábyrgð á framkvæmd stefnu Menningarfélagsins Bergs ses.
Helstu verkefni
·         Kynningarmál og auglýsingar.
·         Utanumhald um viðburði í menningarhúsi s.s. hugmyndavinnu, skipulagningu og fjárhagslega umsýslu.
·         Styrkumsóknir til starfsemi menningarhúss og stuðla að samstarfi á milli aðila.
 
Umsóknir, ásamt ferilskrá, berist til Írisar Daníelsdóttur framkvæmdarstjóra á netfangið berg@dalvikurbyggd.is eða í pósti á heimilisfangið: Menningarfélagið Berg ses., Ráðhúsi Dalvíkur, 620 Dalvík.
Félagið áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum sem berast.
Allar frekari upplýsingar veitir Íris Daníelsdóttir framkvæmdarstjóri í síma 823-8616 eða á netfangið berg@dalvikurbyggd.is.
Fyrir hönd stjórnar Bergs
Íris Daníelsdóttir, framkvæmdarstjóri


Stjórn Menningarfélagsins Bergs vekur athygli á því að rekstur kaffihússins og staða framkvæmdarstjóra eru störf sem geta hentað vel saman og því mögulegt að sækja um hvoru tveggja.  

Athugasemdir