BarSvar í Bergi

Berg býður í BarSvar á Degi íslenskrar tungu, föstudaginn 16. nóvember kl. 20:30. Þema kvöldsins er tónlist en farið verður vítt og breytt um heim íslenskrar dægurlagatónlistar. 

Það er hið dulafulla NFD sem sér um herlegheitin.  Um er að ræða liðakeppni þar sem 2-3 aðilar mynda lið en veitt verða verðlaun fyrir efsta sætið. Tilboð í gangi hjá Kaffihúsinu á meðan á keppni stendur. 

Létt og skemmtileg keppni við allra hæfi - ekki láta þig vanta!

Athugasemdir