Barnamenningarhátíð í Dalvíkurbyggð 13. - 15. september

Nú er komið að því að halda Barnamenningarhátíð í Dalvíkurbyggð í annað sinn. Eins og í fyrra verða ýmsar smiðjur í boði fyrir börn á öllum aldri og vonandi finna allir eitthvað við sitt hæfi. Bókasafnið ætlar líka að opna glænýtt barna- og unglingahorn  og afhenda verðlaun fyrir þátttöku í lestrarstundum og bókaormi síðasta árs. Hátíðin endar svo með tónleikum í Bergi en þar ætlar hljómsveitin Pollapönkt að skemmta en eins og allir vita er alltaf stuð hjá þeim.

Frítt er í allar smiðjur og viðburði á hátíðinni en styrkir frá Dalvíkurbyggð, Barnamenningarsjóði og Menningarráði Eyþings gera okkur kleift að bjóða upp á þessa glæsilegu dagskrá.

Dagskrá hátíðarinnar er svona:

Fimmtudagurinn 13. sept
14:30-16:00 Hljómsveitarsmiðja í Tónlistarskólanum, 6-11 ára, íslensk dægurlög er þemað. 

16:00-17:30 Hljómsveitarsmiðja í Tónlistarskólanum, 12—16 ára, íslensk dægurlög er þemað.

16:15-18:00 Eldhúsið í Hryllingskastalanum. Hvað er borðað þar? Spunadans fyrir 6 -11 ára í Bergi.

Föstudagurinn 14. sept
15:00 Bókasafnið opnar nýtt barna– og unglingahorn og afhendir verðlaun fyrir þátttöku í lestrarstundum og bókaormi.

16:00-18:00 Útilistaverk í Höfðanum - listaverk smíðuð úr tré.

17:00-18:00 Point Dansstúdíó frá Akureyri með námskeið fyrir 7.—10. bekk í Íþróttamiðstöðinni.

Laugardagurinn 15. sept
11:00-12:00 Íþróttaskóli barnanna í íþróttamiðstöðinni (athugið að íþróttaskólinn er hér auglýstur með þar sem hann ber upp á sama tíma, fyrir börn fædd 2007-2010, skráningar á harpa@dalvikurbyggd.is og valdis@dalvikurbyggd.is )

13:00-15:00 Myndasögugerð í Bergi

13:00-15:00 Merki Barnamenningarhátíðar í Bergi

15:00 - 16:00 Fjölskylduyoga í Félagsmiðstöðinni - ungir og aldnir leika sér saman.

16:15 Pollpönk með tónleika með í Bergi. Þegar Pollarnir spila þá er alltaf stuð hjá öllum sem horfa og sérstaklega hjá Pollpönkurunum sjálfum. 

Nánari upplýsingar um smiðjurnar sjálfar er svo að finna hérna - Barnamenningarhátíð í Dalvíkurbyggð 13.-15.september

Athugasemdir