,,Skuggasköpun“

Nemendur listnámsbrautar við Menntaskólann á Tröllaskaga opna á föstudaginn 9. nóvember sýninguna ,,Skuggasköpun“ í Menningarhúsinu Berg á Dalvík.

Á sýningunni má sjá afrakstur verkefnis þeirra þar sem unnið var með þemað ,,Skuggar“.

Sýningin opnar kl 16:00 á föstudag og stendur til sunnudagsins 18. Nóvember.

Allir velkomnir og opið er á opnunartíma Menningarhússins

Athugasemdir